Aðalfundur 2012

Aðalfundur Sportkafarafélags Ísland

Aðalfundur Sportkafarafélags Íslands verður haldinn laugardaginn 18. febrúar 2012, klukkan 14:00, í húsnæði félagsins við Brautarenda.

Rétt til setu og kjörgengis á aðalfundi hafa, mættir fullgildir skuldlausir félagar sem greitt hafa félagsgjöld þess árs sem aðalfundur fer fram á, heiðursfélagar og styrktarfélagar samkv. 5 gr. Kosningarétt hafa einungis mættir skuldlausir félagar, hægt er að greiða félagsgjöld á staðnum með peningum (enginn posi).

Dagskrá:

  1. Fundur settur og kosinn fundarstjóri og fundarritari.
  2. Inntaka nýrra félaga
  3. Lesin fundargerð síðasta aðalfundar.
  4. Stjórn, öryggisnefnd og aðrar nefndir gefa skýrslu um starfsemi liðins árs.
  5. Stjórn leggur fram endurskoðaða reikninga síðasta árs.
  6. Lagabreytingar samkvæmt 11. grein laga félagsins.
  7.  Kosning stjórnar, varamanna, endurskoðenda og öryggisnefndar
  8. Kosning annarra nefnda
  9. Tillögur um inntökugjald og ársgjald í félagssjóð.
  10. Önnur mál.

Tillögur um lagabreytingar þurfa að hafa borist stjórn skriflega a.m.k. 7 dögum fyrir aðalfund og verða þær kynntar á heimasíðu félagsins www.kofun.is eigi síðar en 5 dögum fyrir aðalfund. Tillögur að lagabreytingum sem berast eftir þann tíma verða ekki teknar fyrir á fundinum.

Minnt er á að allar tillögur sem bornar eru fram á fundinum eiga að vera skriflegar og því gott að undirbúa sig vel.

Félagsmenn skulu greiða félagsgjöldinn á eftirfarandi reikning:
0537-26-500963
kt. 520983-0239

Félagsmenn eru hvattir til að bjóða sig fram til stjórnar félagsins. Framboðsfrestur er til 12. febrúar n.k. Nýir félagar jafnt sem eldri eru hvattir til þess að gefa kost á sér í þetta gefandi og skemmtilega félagsstarf. Nú er þinn tími kominn til þess að hafa áhrif á stefnu félagsins. Senda þarf framboð skriflega á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. með vísan til laga félagsins.
 
13. grein: „Stjórn félagsins skipa fimm, formaður og fjórir meðstjórnendur og eru þeir kosnir á aðalfundi til eins árs í senn. Sérstaklega skal kjósa til formanns og tveggja varamanna. Á fyrsta stjórnarfundi, af afstöðnum aðalfundi, skal formaður skipa meðstjórnendur í stöðu varaformanns, gjaldkera og ritara.“

Félagsköfun

Næstkomandi laugardag, þann 21. janúar, ætlum við að fjölmenna í könnurleiðangur í sjóinn til að kanna aðstæður og skyggni. Áfangastaður verður ákveðinn eftir því sem nær dregur, en stefnt er á að fara í Garðinn eða Óttastaði. Fylgist með!

Jólaball SKFÍ 2011

Þá er komið að hinu árlega jólaballi SKFÍ! Að þessu sinni verður það haldið sunnudaginn 18. desember.
Komdu og syntu/dansaðu með okkur í kringum jólatréð í hinni gullfallegu Silfru! Þar mun tónlist, jólaljós og gleði ráða ríkjum!
 
Stefnan er tekin á að dansinn hefjist um 14:00 þannig að gott er að reyna að vera komin tímanlega uppeftir til að gera sig til!
 
Vonumst til að sjá sem flesta! Skráning á Facebook hér.
 
Stjórn SKFÍ

Þáttur um Sykurskipið

Í Landanum í Ríkissjónvarpinu var fjallað um Sykurskipið sem sökk í Skerjafirði í janúar 1941. Í þættinum fylgjumst við með Einari Magnúsi Magnússyni, kafara og kvikmyndagerðamanni, og Sveini H. Guðmarssyni, sjónvarpsmanni kanna þetta frábæra flak. Smellið hér til að horfa á þáttinn.

Hasenmayer

Hér fyrir neðan má hlýða á gríðarlega áhugaverðan útvarpsþátt þar sem fjallað er um þýska hellakafarann Jochen Hasenmayer. Í þættinum er umfjöllun um þennan merkilega mann, viðtöl við Hasenmayer og fleiri og frumsamin tónlist og náttúruhljóð sem skapa ævintýralegan blæ í þessum frábæra þætti.

 

Jochen Hasenmayer - A story of a cave diving legend by Murtomaa