Welcome, Guest
Username Password: Remember me
  • Page:
  • 1

TOPIC: Breyta kútnum mínum úr DIN í YOKE

Breyta kútnum mínum úr DIN í YOKE 4 months ago #7992

  • Ingvar Rúnar
  • OFFLINE
  • eina sem ég bað um var diamond martini..
  • Posts: 6
Ég var að versla mér kút sem er 10L 300Bar og ég þarf stykkið sem að Breytir tenginu úr DIN yfir í YOKE

ég gæti verið að fara með vitlaus nöfn á þessu hérna enda alveg nýr í þessu.

málið er nefnilega það að ég er búinn að Ath.hjá Finna, Köfunarþjónustuni og Dive.is og flest eiga þau þetta stykki en bara fyrir 200bar og það er örlítið styttra en það sem að mig vantar.

það er séns að Köfunarþjónustan sérpanti þetta fyrir mig en mig langaði að Ath. ef að einhver situr á svona stykki og væri til í að selja mér áður en ég fer í að leita fyrir utan landið..

Sími:8484089
Ingvar Rúnar Jóhannesson
þeir gusa mest sem grynnst vaða

Re: Breyta kútnum mínum úr DIN í YOKE 4 months ago #7993

Sælir
300 bar kútur er gerður til þess að tengjast ekki við 200 bör lungu. Ef þú ætlar að nota 200 bar yoke tengi við þennan kút þá er það ekki hægt. Það eru ekki framleitir kjarnar inn í þennan kút svo að hægt sé að tengja 200 bar yoke tengi við hann því ef það væri gert myndir þú geta hlaðið kútinn upp í 300 bör og set svo kjarnan í hann og notað lungu sem eru með yoke og aðeins gerð til að þola 200 bör. Slíkt getur haft alvarlegar afleiðingar í för með sér og jafnvel endað í slysi. Skiptu um krana og fáðu þér venjulegan 200 bara krana eða 232 bara krana. Annars getur þú líka keypt þér köfunarlungu sem þola 300 bör en ódýrast er fyrir þig að fá þér nýjan krana en um leið og þú setur 200 bara krana á kútinn þá getur þú ekki set meira en 232 bör á kútinn.

Re: Breyta k​útnum mínum úr DIN í YOKE 4 months ago #7994

  • Ingvar Rúnar
  • OFFLINE
  • eina sem ég bað um var diamond martini..
  • Posts: 6
Takk fyrir svarið

en já það var immit verið að segja mér frá því að þetta gengur ekki upp. Er þá eina í stöðuni að skipta um krana, þá er ég með spurningu, eru þeir til hérna á íslandi og kostar það ekki milljón?

en annars get ég skilað kútnum og fengið 12L 200bar í staðinn sem að ég er þá bara að spá í að gera, er bara ekki viss um að það sé nógu stór kútur, eins og staðan er í dag þá nota ég slatta af lofti í kafi hehe.
þeir gusa mest sem grynnst vaða
  • Page:
  • 1
Time to create page: 0.63 seconds