Print

Skilmálar um notkun á kofun.is

 

  1. Skilmálar þessir gilda fyrir alla notkun á kofun.is/köfun.is (hér eftir köfun.is) í hverri mynd sem hún kann að vera. Skilmálar þessir geta verið endurskoðaðir án fyrirvara ef þörf krefur.
  2. Köfun.is er vefsvæði í eigu Sportkafarafélags Íslands (hér eftir S.K.F.Í.) og er opinber fréttamiðill félagsins.
  3. Stjórnendur köfun.is (hér eftir vefstjórn) eru meðlimir í stjórn S.K.F.Í. auk vefstjóra sem kosinn er á aðalfundi.
  4. Stjórnendur köfun.is hafa ótakmarkaða heimild til efnisstjórnunar á vefnum hvort sem um ræðir fréttir, spjall eða annað. Stjórnendur mega þó ekki breyta innleggjum notenda á spjallinu nema að tilgreina greinilega að svo hafi verið gert og hvers vegna.
  5. Köfun.is er opinn öllum einstaklingum til notkunar, en félagar í S.K.F.Í. hafa þó aðgang að efni á vefnum sem varða mál félagsins sem aðrir notendur sjá ekki. Fyrirtæki mega ekki stofna aðgang að vefnum.
  6. Notendur skulu skrá sitt rétta nafn í prófíl sinn og ávallt koma fram undir nafni sínu þegar skrifað er á spjall köfun.is.
  7. Köfun.is mun eftir fremsta megni tryggja öryggi og trúnað notenda vefsins.
  8. Köfun.is ber þó hvorki ábyrgð á tjóni sem kann að orsakast af notkun vefsins né ef vefurinn er óaðgengilegur af einhverjum ástæðum. Köfun.is ber ekki ábyrgð á gögnum sem kunna að tapast eða skemmast sem geymd eru á búnaði köfun.is. Köfun.is ber ekki ábyrgð á tjóni sem þriðji aðili veldur, til dæmis með skemmdum á efni sem köfun.is geymir á búnaði sínum.
  9. Haga skal notkun í samræmi við góða siði og umgengnisreglur sem almennt eru viðurkenndar á Internetinu. Ærumeiðingar, tilhæfulausar ásakanir og árásir á aðra notendur eru ekki liðnar.
  10. Óheimilt er að nota aðgang annarra. Þar með talið er óheimilt að lána óviðkomandi notendaaðgang, nota kennitölu annarra, reyna að komast yfir aðgangs- og lykilorð annara eða nota á annan hátt gögn eða samskipti sem tilheyra öðrum.
  11. Óheimilt er að nota aðganginn til að brjótast inn eða að reyna að brjótast inn í tölvukerfi eða tölvunet annarra eða til að valda tjóni á búnaði eða gögnum. Köfun.is. ber ekki ábyrgð á því tjóni sem slíkt kann að valda.
  12. Óheimilt er að trufla samskipti eða valda óeðlilegu álagi á tengingum annarra.
  13. Óumbeðnar fjöldasendingar eru með öllu óheimilar sem og notkun á félagatali án leyfis.
  14. Notandi samþykkir að allar þær upplýsingar sem hann slær inn verði vistaðar á gagnagrunni köfun.is. Vefstjórn og umsjónarmenn kerfanna verða ekki saksóttir ef innbrot eða annar óheimill aðgangur að gagnagrunni leiðir til þess að upplýsingar eru teknar af grunninum og nýttar eða dreift með einhverjum hætti.
  15. Óheimilt er að birta efni á heimasíðum sem ekki er í samræmi við lög og reglur eða almennt velsæmi, þar með talið ærmueiðandi efni og/eða klámfengið efni af hvers kyns toga.
  16. Allar auglýsingar eru bannaðar á spjalli köfun.is nema í þar til gerðum undirflokkum. Auglýsingar verða umsvifalaust færðar í auglýsingaflokk ef þær birtast annars staðar.
  17. Óski félagsmaður eftir því að eitthvað er honum finnst niðrandi og lýtur að honum verði fjarlægt af köfun.is, skal vefstjórn verða við því. Skal þeim sem skrifaði níðinn tilkynnt ákvörun vefstjórnar.
  18. Brjóti notendur reglur þessa skilmála er vefstjórn heimilt að banna þeim aðgang að vefnum tímabundið eða til frambúðar, en það skal metið af stjórn hverju sinni með hliðsjón af alvarleika brotsins. Notandi skal hafa samband við vefstjórn vilji hann útskýra mál sitt og endurheimta aðgang sinn.