Húsnæði SKFÍ
Sjáið lausar dagsetningar á dagatalinu hér til hægri.
Sportkafarafélag Íslands
Nauthólsvegi 100a
101 Reykjavík
Sími: 895 1216.
Kt: 520983-0239
Reikningsnr: 0537-14-608900
Sportkafarafélag Íslands á sitt eigið hús að Nauthólsvegi 100a í Nauthólsvík. Þar er aðstaða til að hittast, spjalla saman og drekka kaffi.
Uppi í risinu er að myndast vísir að koníaksstofu og er hún jafnframt videostofa. Húsnæðið hefur verið leigt út í gegnum tíðina til félagsmanna S.K.F.Í. en býðst einnig þeim sem kunna ekki að kafa ;) Húsið tekur að hámarki 50 manns, borðbúnaður ekki innifalinn en örbylgjuofn og ísskápur eru til staðar.
View Sportkafarafélag Íslands in a larger map
Leiga á húsi
Helgar
Um helgar er húsnæðið leigt út frá kl. 14 til hádegis næsta dags.
Verð: 45.000,- þrif innifalin.
Trygging: 50.000.- (endurgreitt ef ekkert tjón er og húsinu skilað samkvæmt skilmálum leigusamnings)
Aðrir dagar
Á virkum dögum er húsnæðið leigt út til hádegis næsta dag (eða eftir samkomulagi). Á fimmtudögum eru félagskvöld SKFÍ svo það er ekki hægt að leigja húsið þau kvöld.
Verð: 25.000,-
Trygging: 50.000,- (endurgreitt ef ekkert tjón er og húsinu skilað samkvæmt skilmálum leigusamnings)
Ef almennur frídagur er næsta dag telst kvöldið á undan sem helgarleiga.

