|
Skrifað hefur Logi Júlíusson
|
|
mánudagur, 30 ágúst 2010 |
|
Er geymslan þín full af köfunardóti
sem þú ert hætt/ur að nota ???
Komdu með það á skipti/sölu markað í
húsi SKFÍ
fimmtudagskvöldið 2. Sept kl. 19:30
til 22:00.
Heyrum um köfun í útlöndum í
leiðinni!
Allir velkomnir og heitt kaffi á könnunni.
|
|
|
Skrifað hefur Baldur Már Helgason
|
|
miðvikudagur, 25 ágúst 2010 |
|
Kári pálsson verður með kynningu og myndir frá köfunum erlendis, mun hann segja okkur frá hvernig er hægt að gera þetta ódýrt og spennandi.
Staðirnir sem sagt verður frá eru:
- Sharm el sheikh
- Grand cayman
- Cosumel (Mexico)
- Malasía-Borneo (Kota kinabalau og Sipadan)
Thailand Pattaia (t.d Phi phi islands) svæðið og Phuket (Similan Islands).
Ef einhverjir félagar eru búnir að kafa á Great barrier Reef í Ástralíu og Palau, þá væri gaman að fá smá uppýsingar um það líka, og kannski myndir.
Kv. Stjórnin
|
|
|
Skrifað hefur Baldur Már Helgason
|
|
fimmtudagur, 19 ágúst 2010 |
|
Það er komið frábært verð í gistingu, 1500 kr. nóttin, á beddum m/dýnum í Björgunnarsveitarhúsinu, eldunnaraðstaða á staðnum :)
Félagið mun bjóða uppá eina góða máltíð í ferðini, sennilega á laugardagskvöldinu.
það eru nokkrir búnir að tala um að fara á föstudeginum og koma tilbaka á mánudeginum.
Félagar sem ætla með í ferðina eru beðnir um að mæta niðurí félag á morgun og greiða staðfestingagjald uppá 3000,- bara svo við vitum hverjir ætla með :) og þá eru fleiri upplýsingar um hitt og þetta.
Einnig er hægt að leggja inná reikning félagsins.
Kv. Stjórnin
|
|
|
Skrifað hefur Baldur Már Helgason
|
|
fimmtudagur, 12 ágúst 2010 |
Gríðarleg stemming er nú fyrir Vestfjarðarferðinni. Margir hafa lýst áhuga á að fara í þessa ferð enda einstaklega gaman að kafa fyrir vestan og skyggni í sjónum þar oft með því besta sem gerist við strendur Íslands. Fyrirhugað er að fara í bátakafanir jafnt sem strandkafanir. Ferðin mun henta jafnt byrjendum sem lengra komnum köfurum. Vinsamlegast skráið ykkur sem allra fyrst inn á viðburðarsíðunni svo að hægt verði að fá verð í gistingu og sameiginlegan kostnað. Það er greinilegt að kostnaður verður ekki mikill við þessa ferð ef hann deilist á eins marga og hafa lýst yfir áhuga á að fara í ferðina. Simbi fyrrverandi formaður mun verða okkur innanhandar við val á köfunarstöðum og heimamenn munu kafa með okkur.
|
|
|
Skrifað hefur Logi Júlíusson
|
|
sunnudagur, 04 júlí 2010 |
|
Bókin "Leyndardómar sjávarins við Ísland"
er á tilboði fyrir félagsmenn S.K.F.Í.
Aðeins 3.400 kr.
Pantanir sendist á netfangið
Þetta netfang er varið fyrir ruslpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
Kv. Stjórnin.
|
|
|
Skrifað hefur Baldur Már Helgason
|
|
fimmtudagur, 17 júní 2010 |
|
Stjórnin hefur tekið ákvörðun um að loka spjallinu fyrir almenning.
Til að fá aðgang að síðunni og öllu því skemmtilega sem félagið býður uppá þarf bara að greiða félagsgjaldið, sem er kr. 9500,- (utanbæjarfélagar greiða kr. 4000,-) inn á eftirfarandi reikning: 537-26-500963 - kt:520983-0239 og senda tilkynningu á
Þetta netfang er varið fyrir ruslpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
Kv. Stjórnin
|
|
|
Skrifað hefur Ingibjörg Björgvinsdóttir
|
|
mánudagur, 14 júní 2010 |
|
VERÐ 166 000 ikr með flugi frá íslandi
A. Blandað liveabourd og hótelgysting í
Sharm El Shaik.
Pakkaferð frá Danmörku er 13100 íkr, tilboðið
miðast við 10 kafara. Flogið er í gegnum Kaupmannahöfn. Ég er ekki komin með
tíman á fluginu til Egyptalands. Flug til og frá Íslandi með Icelandair er 35000
Íkr. Heildarpakki með flugi frá Íslandi er þá 166000 þús. Innifalið er 3 dagar
á liveaboard, fullt fæði á bátnum og 4 kafanir á dag. Í landi er innifalið 4 nætur á hóteli með
morgunmat og 2 local kafanir með bát frá Sharm El Shaik. Hægt er að vera 1 auka viku í Egyptalandi
kostar ca 43000 íkr. Sjá slóð fyrir ferðina og fyrir hóteli. Ekki er innifalið ca.9000 ikr aukakostnaður m.a tryggingar. Myndir af bátnum eru á síðunni okkar undir myndir 2010. Ég er hrædd um að ekki verði hægt að tryggja þennan bát nema með því að staðfesta fyrir 1 ágúst. Endilega þeir sem eru ákveðnir í að fara bætið ykkur á skráningarlistan.Geri ráð fyrr að þeir sem ætli að skoða pýramíddana fari saman í þá ferð ætti að sparast miklir peningar á því.
http://www.atlantisrejser.dk/Catalog.php?l=3&i=342
http://www.atlantisrejser.dk/Catalog.php?l=3&i=444
|
|
|
Skrifað hefur Logi Júlíusson
|
|
þriðjudagur, 08 júní 2010 |
Félagsmenn takið 3. júli frá ;)
Auka aðalfundur – Grill/bjórkvöld
Laugardagskvöldið 3.
júli kl. 18:00 verður auka aðalfundur, þar sem endurskoðaður ársreikningur 2009
verður lagður fram til samþykktar. Strax á eftir verður félagsfundur fyrir
almennar umræður. Stjórnin var hálf óundirbúin fyrir síðasta fund sem gleymdist
að auglýsa almennilega og biðjumst við velvirðingar á því. En mætingin var góð sem
við þökkum fyrir og þær skemmtilegu
umræður sem þar fóru fram J
Í kjölfarið verður kveikt upp í grillinu okkar og eru félagsmenn hvattir til að koma með
eitthvað ljúffengt á grillið svo við getum borðað saman. Einnig verða veigar seldar
á vægu verði gegn staðgreiðslu (engin posi á staðnum).
Mætum öll hress og kát ;)
Kv. Stjórnin
Party – Party
|
|
|
Skrifað hefur Logi Júlíusson
|
|
þriðjudagur, 01 júní 2010 |
|
Um næstu helgi verðu hin árlega Hátíð hafsins haldin, hvar annars staðar en niður við höfn
SKFÍ stefnir á að vera þar sjáanlegt og hefur borgin útvegað okkur aðstöðu, tjald og fl. þar sem við getum kynnt starfsemi félagsins.
Planið er að gera eins í gert var einu sinni að tína skeljar og grilla ofan í gesti og gangandi og því er hér með óskað eftir félagsmönnum til að taka þátt í skeljatínslu og kynningarstarfi um helgina.
Ef við leggjumst á eitt að tína skeljar og skipta með okkur helginni í kynningu er þetta ekkert mál, félaginu til framdráttar og hrein skemmtun.
Skeljatínsla verður á Óttastöðum föstudagsseinnipart og mæting kl. 18:00 við Straum eða 17:30 í félagsheimilinu. Það verður látið ráðst hvort kafa þurfi eftir skel á laugardaginn.
ATH! Allir sem taka þátt í Hátíð hafsins á vegum félagsins fá 5.000 kr. niðurgreiðslu á Vestmannaeyjaferðinni.
Látið endilega vita hvort þið getið tekið þátt svo við getum skipulagt þetta vel.
Kveðja,
Stjórnin
|
|
|
Skrifað hefur Logi Júlíusson
|
|
þriðjudagur, 25 maí 2010 |
|
Jónína Ólafsdóttir mun kynna
rannsóknarverefni sitt um köfun á Íslandi á fimmtudag kl 20:30.
Kynningin er er unnin upp úr mastersritgerð hennar. Við hvetjum alla sem
eiga heimangengt að mæta niður í félag og hlusta á niðurstöður hennar.
Kveðja,
Stjórnin
|
|
|
Skrifað hefur Logi Júlíusson
|
|
þriðjudagur, 11 maí 2010 |
|
Félagsferð til köfunar á El Grillo verður farin 21-24 maí næstkomandi. Þetta er eitthvað sem þú vilt ekki missa af! Skráning fer fram á kofun.is undir liðnum "Næstu viðburðir".
Almennur kostnaður miðað við 10 manns er 7.000 kr- og þeir sem ætla með í þessa ferð eru beðnir um að leggja inn á reikning félagsins 537-26-500983 kt:520983-0239 til staðfestingar fyrir mánudaginn 17 maí næstkomandi. Innifalið í þessum 7000,- eru afnot af Bjsv húsinu alla helgina, til að geyma og skola dótið okkar, og bátsferðirnarsem eru áætlaðar 5 stk, 2 á laugardag, 2 á sunnudag og 1 á mánudagsmorun.
Fengum 3 tilboð í gistingu og er verðið frá 9.600,- til 13.500,-.
- Ódýrast er á gistiheimilinu Hafaldan, í 4-6 manna herb. með aðgang að öllu 3.200,- per nótt, með rumfatnaði.Hægt að fá 2 manna herb. á 1000.- á mann í viðbót.
- Hótel Aldan er með 3.500,- í 2-3 manna herb. án morgunmatar og 4.500,- m/ morgunmat.
- Norðursild er með 5.500,- með uppábúið og handklæði í 2 manna herb. og 4.500,- án líns.
Félagið ætlar að splæsa í sameiginlegan mat á laugardagskvöldið 
AMEN verður köfunarstjóri í ferðinni og verður með kynningu fyrir þá sem ekki hafa farið í Grilló áður, miðvikudagskvöldið 19. maí
Kveðja,
Stjórnin.
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
| Úrslit 1 - 15 af 161 |