topleft
topright
Formúlur
Formúlur

Skýringar

½ + 14 bar reglan

Reikniregla sem notuð er til að stjórna gasnotkun og miðar við að snúa til baka þegar helmingur upprunalegra gasbirgða er eftir að viðbættum 14 bar (einnig nefnt: “½ + 200 psig”), Yfirleitt notað í “Open Water” köfunum.

Argon

Lofttegund sem hefur aðeins betra einangrunargildi en andrúmsloft og af þeim sökum stundum notað fyrir þurrbúninga til einangrunar jafnt sem flotjöfnunar og þá sérstaklega í Trimix köfunum þar sem helíum leiðir hita 5x hraðar en loft. Argon hefur nánast ekkert hagnýtt gildi sem öndunarlofttegund.

ATA

“Atmospheres Absolute” Þrýstingseining sem samsvarar loftþyngd (Atm) Heildarþrýstingur á tilteknu dýpi þ.e vatnsþrýstingur að viðbættu 1 atm . Einnig notað til að tákna t.d hlutþrýsting lofttegunda.

Bar

Mælieining fyrir þrýsting sem er örlitlu minni en 1 loftþyngd (1 ATA = 1.0132 Bar)

Best Mix

“Besta blanda”. Hentugasta hlutfall súrefnis í nitrox-blöndu miðað við tiltekið dýpi og fyrirfram ákveðinn hlutþrýsting súrefnis: FO2=PO2/P

BT

Botntími. Tími frá því kafari fer undir yfirborð og þar til bein og/eða síðasta uppstigning aftur til yfirborðs hefst.

CNS

“Central Nervous System”: Miðtaugakerfi. Yfirleitt notað í samhengi við CNS oxygen toxicity eða eitrunaráhrif súrefnis á miðtaugakerfið. Í köfun er miðað við að hlutþrýstingur súrefnis fari helst aldrei yfir 1,6 ATA. Eitrunaráhrif eru meðal annars kröftug flog.

D

Dýpt í metrum

DCI

“Decompression illness”: Þrýstifallsveiki. Vítt hugtak sem tekur yfir öll einkenni þrýstifalls á líkamann, þar með talin köfunarveiki.

DCS

“Decompression Sickness”. Köfunarveiki, einnig nefnt á ensku “The Bends”.
Köfunarveiki skiptist í tvær gerðir eftir alvarleika. “Type I”: Einkenni aðallega í vöðvum og húð og svo sú sem er alvarlegri eða “Type II”: :Þegar einkenna er vart í taugakerfi, hjarta og æðakerfi og öndunarfærum.

Deco

Stytting fyrir “decompression”. Yfirleitt notað um afþrýstistopp og sem forskeyti fyrir ýmislegt sem viðkemur afþrýstistoppum.

EAD

“Equivalent Air Depth” : Ath: Stundum einnig skammstafað sem END (Equivalent nitrogen/narcotic depth) ef borið er saman við lægra gildi en 0.79 af köfnunarefni (EANx). Gildi sem samsvarar hlutþrýstingsdýpt köfnunarefnis miðað við að andað sé lofti (eða EANx). Það mætti hugsa sér þetta gildi sem það dýpi sem líkaminn “heldur” að hann sé á útfrá hlutþrýstingi köfnunarefnis. Notað við Nitrox og Trimix kafanir. Hægt er að notast við köfunartöflur fyrir loft út frá þessu gildi þó kafað sé með Nitrox : EAD=((FN2 * (D+10))/0.79) – 10

EAN

“Enriched Air Nitrox”: Skammstöfun fyrir Nitrox og yfirleitt notað með ákveðnu prósentuhlutfalli súrefnis t.d EAN30 og EAN38.

EANx

Almenn skammstöfun fyrir Nitrox þar sem hlutfall O2 er ekki tilgreint/vitað.

END

“Equivalent Narcotic Depth”: Hugtak notað við djúpkafanir á t.d Trimix og Heliox til að bera saman vímuáhrif af þessum gasblöndum samanborið við venjulegt loft við mismunandi dýpi og blöndur. Hafa ber í huga að áhöld eru um hvort og hversu mikil áhrif O2 hefur á djúpsjávargleði en þessi jafna leggur áhrif N2 og O2 að jöfnu : END = ((D + 10) × (1 − FHe))− 10. Til eru ýmsar jöfnur fyrir þennan útreikning með mismunandi forsendum fyrir áhrifum lofttegundanna og telst t.d formúlan fyrir EAD vera ein þeirra.

Fg

Hlutfall (ótiltekinnar) gastegundar af 1. d: FN2 = 0.79 þ.e. = 79%

FO2

Hlutfall súrefnis

FSW

“Feet of Sea Water” : Dýpt í sjó mæld í fetum (einnig til FFW fyrir ferskvatn)

Heliox

Gas til öndunar sem samanstendur eingöngu af helium (He) og súrefni (O2). Yfirleitt notað í mjög djúpar kafanir þar sem hlutfall O2 er haft lágt og þarf því aðra blöndu nær yfirborði (e. travel gas) svo hlutþrýstingur O2 sé nægjanlegur þar.

MOD

“Maximum Operating Depth” : Hámarks köfunardýpi (ATA) út frá tilteknum hlutþrýstingi súrefnis þannig að PO2 fari ekki yfir hættumörk og er allajafna miðað við 1.6 ATA. Það getur þó verið mismunandi eftir kennslukerfum og aðstæðum hver hættumörk eru skilgreind (lægri fyrir: líkamlega erfiðar, langar og kaldar kafanir) en þau geta legið á bilinu 1.2-1.6 ATA. Aðalatriði er að þetta sé vel samræmt a.m.k. innan köfunarteymis og hafa því einnig orðið til hugtök eins og TOD (Target Operating Depth) og PD (Planned Depth) fyrir lægri hlutþrýsting súrefnis en 1.6 ATA. MOD = PO2/FO2

MSW

“Meters of Sea Water” : Dýpt í sjó mæld í metrum (einnig til MFW fyrir ferskvatn)

NDL

“No Decompression Limit”: Tímamörk sem miðast við að uppsöfnun N2 í líkamanum sé ekki það mikil að taka þurfi afþrýstistopp á leið til yfirborðs (afþrýstiskylda). NDL er mismunandi milli köfunartafla og öryggisstopp eru alveg óháð NDL.

Nitrox

Heiti sem notað er yfir hvaða blöndu sem er af köfnunarefni og súrefni (ekki tekið tillit til snefil-lofttegunda).

Pg

Hlutþrýstingur (ótiltekinnar) gastegundar yfirleitt mælt í ATA.

PN2

Hlutþrýstingur köfnunarefnis (ATA).

PO2

Hlutþrýstingur súrefnis (ATA).

RMV

“Respiratory Minute Volume”. Það magn lofts sem kafari andar að og frá sér á hverri mínútu. Þetta magn er mjög mismunandi milli kafara og líka breytilegt hjá einstaklingum eftir líkamlegu- og köfunarformi. Það er m.a notað til að áætla endingu gasbirgða fyrir kafanir og mælist yfirleitt í lítrum eða rúmfetum á mínútu. RMV=SAC/(CWP/CV)
CWP=Vinnuþrýstingur kúts
CV = Gasrýmd kúts við vinnuþrýsting.

RNT

“Residual Nitrogen Time”: Hugtak notað til að ákvarða magn uppleysts köfnunarefnis í kafara úr síðustu köfun en taka þarf tillit til þess þegar skipulögð er næsta köfun.

Rule of thirds

Þriðjungsreglan. Reikniregla sem notuð er til að stjórna gasnotkun og miðar við að snúa til baka þegar notaður hefur verið 1/3 af megingasbirgðum þannig að a.m.k. 2/3 séu til ráðstöfunar á bakaleið + öryggisbirgðir ef ákveðnar eru. Yfirleitt notað við djúpkafanir sem krefjast afþrýstistoppa og smygnikafanir (e. penetration dive) í t.d. flök og hella þar sem aðgangur að yfirborði er takmarkaður.

SAC (SCR)

Surface Air Consumption (Surface Consumption Rate) : Notað til að ákvarða loftnotkun við yfirborð (1 ATA) og er yfirleitt mælt í bar eða PSI á mínútu. Stundum einnig notað svipað og RMV þ.e í lítrum eða rúmfetum á mínútu. Er eðli málsins samkvæmt breytilegt eftir stærð og vinnuþrýstingi kúta og því yfirleitt umreiknað í RMV.
SAC = (ATA x Tími(mín))/ AC
AC = Air consumed, þ.e loftnotkun við ákveðið dýpi (ATA) í bar eða psi.

SIT

Surface Interval Time: Sá tími sem kafari er á yfirborði milli kafana.

Trimix

Blanda af súrefni, köfnunarefni og helíum í ýmsum hlutföllum sem ákvarðast m.a. af dýpt og lengd köfunar. Til eru ýmsar nafngiftir á mismunandi blöndur og vart fyrir óinnvígða að setja sig inn í það. Almennt er þó talað um Normoxic Trimix þegar hlutfall súrefnis er 21% eða sama og andrúmslofts, Hyperoxic trimix er þegar O2 er meira en 21% (líka nefnt Triox) og Hypoxic Trimix er þegar hlutfall O2 er lægra en 21%. Það síðastnefnda er notað fyrir dýpri kafanir. Dæmi um fleiri heiti eru Heliair og Helitrox .

ATHUGIÐ!
SKFÍ tekur enga ábyrgð á niðurstöðum útreikninganna og setur allan fyrirvara varðandi áreiðanleika þeirra og hugsanlegar villur í formúlum. Ef nota á reiknivélarnar fyrir raunverulegar kafanir skal ALLTAF sannreyna niðurstöðurnar.

Breytijöfnur

Dýpt m. = ATA ATA = (Dýpt(m) / 10) + 1 , Dýpt(m) = (ATA − 1) × 10
Bar = PSI 1 bar = 14,5038 psi , 1 psi = 0,06895 bar
Lítrar = Rúmfet 1 L = 0,0353 rúmfet , 1 rúmfet = 28,317 L
= C° = (F° − 32) × 5/9 , F° = C° × 9/5 + 32
Kg = Pund 1 kg = 2,2046 pund , 1 pund = 0,4536 kg
Metrar = Fet 1 m = 3,281 f , 1 f = 0,3048 m

Best Mix

BM O2% = (ppO2 / ((D/10) + 1)) × 100

Dýpt í m. Best Mix = EAN % O2
ppO2

Maximum Operating Depth

MOD m. = (ppO2 / (O2% / 100) − 1) × 10

ppO2 MOD = metrar
O2%

Equivalent Air Depth (Equivalent Nitrogen Depth)

EAD = (((N2% / 100) × (D + 10)) / 0.79) − 10

N2% EAD = metrar
Dýpt í m.
N2 stuðull

Equivalent Narcotic Depth

END = ((D + 10) × (1 − (He%/100))) − 10

He% END = metrar
Dýpt í m.

½ + 14 Bar reglan

SN = ((UÞ − ÖB) / 2) + 14 + ÖB

Upphafsþrýstingur bar Snúningsþrýstingur = bar
Öryggisbirgðir bar

Rule of thirds (Þriðjungsreglan)

SN = ((UÞ − ÖB) / 3) × 2 + ÖB

Upphafsþrýstingur bar Snúningsþrýstingur = bar
Öryggisbirgðir bar

SAC/RMV

Surface Air Consumption SAC í bar á mínútu (fyrir tiltekinn kút):

SAC = Loftnotkun / (((D / 10) + 1) × Tími(mín))

Dýpt metrar SAC = bar/mín
Tími mínútur
Loftnotkun bar

 

Respiratory Minute Volume RMV í lítrar á mínútu:

RMV = SAC / (vinnuþrýstingur / gasrýmd)

Vinnuþrýstingur kúts bar RMV = lítrar/mín (óháð kút)
Gasrýmd kúts v. vþ. lítrar
SAC kúts bar/mín

 

RMV í SAC (fyrir tiltekinn kút):

SAC = (vinnuþr. / gasrýmd) × RMV

Vinnuþrýstingur kúts bar SAC = bar/mín
Gasrýmd kúts v. vþ. lítrar
RMV lítrar/mín

Loftnotkun

Loftnotkun í bar:

Loftnotkun bar = SAC × ((D / 10) + 1) × Tími

Dýpt metrar Loftnotkun = bar
Tími mínútur
SAC bar/mín

 

Loftnotkun í lítrum:

Loftnotkun l. = RMV × ((D / 10) + 1) × Tími

Dýpt metrar Loftnotkun = lítrar
Tími mínútur
RMV lítrar/mín

Loftending

Loftending (m.v bar/mín):

Loftending mín. = Þrýstingur loftb. / (SAC × ((D / 10) + 1))

Dýpt metrar Loftending = mínútur
SAC bar/mín
Þrýstingur loftbirgða bar

 

Loftending: (m.v lítrar/mín):

Loftending mín. = Rýmd loftb. / (RMV × ((D / 10) + 1))

Dýpt metrar Loftending = mínútur
RMV lítrar/mín
Rýmd loftbirgða lítrar
 
Sportkafarafélag Íslands  -  Brautarenda  -  Flugvallarvegi  -  Sími 551 1211  -  Þetta netfang er varið fyrir ruslpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

 

Vefsíðugerð: Vefsíður.is
Joomla Templates by JoomlaShack Joomla Templates