topleft
topright

Innskráning

Skilmálar um notkun á kofun.is/köfun.is PDF Prenta Tölvupóstur


1. Skilmálar þessir gilda fyrir alla notkun á kofun.is/köfun.is í hverri mynd sem hún kann að vera. Skilmálar þessir geta verið endurskoðaðir án fyrirvara ef þörf krefur.

2. Ef skilmálar þessir eru brotnir getur það valdið tafarlausu banni að aðgangi að notendasvæðum kofun.is/köfun.is, án fyrirvara. Sá sem er settur í bann getur andmælt skriflega til stjórnar.

3. Kofun.is/köfun.is mun eftir fremsta megni tryggja öryggi og trúnað notenda vefsins.

4. Köfun.is/köfun.is ber þó hvorki ábyrgð á tjóni sem kann að orsakast af notkun né ef ekki er hægt að nota þjónustuna af einhverjum ástæðum. Kofun.is/köfun.is ber ekki ábyrgð á gögnum sem kunna að tapast eða skemmast sem geymd eru á búnaði kofun.is/köfun.is. kofun.is/köfun.is. ber ekki ábyrgð á tjóni sem þriðji aðili veldur, til dæmis með skemmdum á efni sem kofun.is/köfun.is. geymir á búnaði sínum.

5. Haga skal notkun í samræmi við góða siði og umgengnisreglur sem almennt eru vidurkenndar á Internetinu. Ærumeiðingar, tilhæfulausar ásakanir og árásir á aðra notendur er ekki liðnar. Þursar (e. "Trolls"), þ.e.a.s. þeir sem hafa það eina markmið að koma af stað rifrildum, eru ekki umbornir. Stjórnendur vefsins meta það hverju sinni hvort viðkomandi notandi sé að þursast eður ei.

6. Óheimilt er að nota aðgang annarra. Þar með talið er óheimilt að lána óviðkomandi aðgangsorð, nota kennitölu annarra, reyna að komast yfir aðgangs- og lykilorð annara eða nota á annan hátt gögn eða samskipti sem tilheyra öðrum.

7. Óheimilt er að nota aðganginn til að brjótast eða að reyna að brjótast inn í tölvukerfi eða tölvunet annarra eða til að valda tjóni á búnaði eða gögnum. kofun.is/köfun.is. ber ekki ábyrgð á því tjóni sem slíkt kann að valda.

8. Óheimilt er að trufla samskipti eða valda óeðlilegu álagi á tengingum annarra.

9. Óumbeðnar fjöldasendingar eru með öllu óheimilar sem og notkun á félagatali án leyfis.

10. Notandi samþykkir að allar þær upplýsingar sem hann slær inn verði vistaðar á gagnagrunni kofun.is/köfun.is. Vefstjórn, stjórn S.K.F.Í., umsjónarmenn kerfanna eða stjórnendur spjallrása verða ekki saksóttir ef innbrot eða annar óheimill aðgangur að gagnagrunni leiðir til þess að upplýsingar eru teknar af grunninum og nýttar eða dreift með einvherjum hætti.

11. Óheimilt er að birta efni á heimasíðum sem ekki er í samræmi við lög og reglur eða almennt velsæmi, þar með talið ærmueiðandi efni og/eða klámfengt efni af hverskyns toga. Mun vefstjórn meta það hverju sinni. Öll sölustarfsemi er bönnuð á spjallrásum kofun.is/köfun.is og skal öll sala fara fram í smáauglýsingum.

12. EIngöngu greiddir og skuldlausir félagsmenn S.K.F.Í. hafa rétt á aðgangi að notendasvæðum kofun.is/köfun.is., þar með talið að taka þátt í umræðum, birta auglýsingar og myndir.

13. Óski félagsmaður eftir því að eitthvað er honum finnst niðrandi og lýtur að honum verði fjarlægt af vef kofun.is/köfun.is, skal vefstjórn verða við því. Skal þeim sem skrifaði níðinn tilkynnt ákvörun vefstjórnar.

14. Brjóti notendur kofun.is/köfun.is þessar reglur er stjórn vefsins (stjórn S.K.F.Í.) heimilt að banna þeim aðgang að notendasvæðum í allt að þrjá mánuði, en það skal metið af stjórn hverju sinni með hliðsjón af alvarleika brotsins.
 
Sportkafarafélag Íslands  -  Brautarenda  -  Flugvallarvegi  -  Sími 551 1211  -  Þetta netfang er varið fyrir ruslpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

 

Vefsíðugerð: Vefsíður.is
Joomla Templates by JoomlaShack Joomla Templates