topleft
topright
Leigja húsnæði

Innskráning

P1010089.JPG
041.JPG
P4210418sM.jpg
Pressukvöld og skiptimarkaður
sunnudagur, 02 maí 2010
 
Minnum á pressukvöld og skiptimarkað
 fimmtudaginn 6.maí næstkomandi á 
milli 19:30-22:00 í höllinni 
okkar að Brautarenda.

 

 
Bátaköfun
föstudagur, 23 apríl 2010

 

Bátaköfun í Ásgrími og áhöfninni í björgunarsveitnni Ársæli laugardaginn 1
maí, kl. 10:00
. Ferðin er gjaldfrjáls fyrir greidda félaga SKFÍ. Við hittumst í húsi sportkafarafélagsins kl. 09:30 og leggjum saman af stað í Ásgrím. Það  má einnig mæta beint í skipið rétt fyrir 10. Farið verður í Gullkistuvík og flakið Sigurjón. Áætlað að koma til baka um 15:00. Open water kafanir, koma með bauju, nesti og góða skapið.


Hlökkum til að sjá sem flesta

Stjórnin

 
Skráa og lyklaskipti.
þriðjudagur, 13 apríl 2010

Skráa og lyklaskipti.

 

Stjórn hefur ákveðið að skipta um skrár og lykla að Höllinni okkar, því ekki er vitað almennilega hverjir eru með lykla.

 

Greiddir kennarar og fyrirtæki sem vilja fá lykla geta komið á næsta pressukvöld og sótt sér lykil gegn kr.3000,- tryggingu.

 

Kv.Stjórnin

 
Lokun flugvallarvegar 6.-16.apríl
fimmtudagur, 08 apríl 2010
Sportkafarafélaginu barst póstur í dag
frá Reykjavíkurborg og inniheldur eftirfarandi:
 
 
"Áætluð er tenging nýs Flugvallarvegar við eldri hluta vegarins. Nauðsynlegt verður að fjarlæga slitlag núverandi vegar, grafa fyrir nýjum veitulögnum og aðlaga hæðarlegu eldri veghluta að nýjum. Jafnframt verða gönguleiðir beggja vegna Flugvallavegar gengt Hertz bílaleigu og Flugbjörgunarsveit Reykjavíkur endurnýjaðar.
Vegna ofangreindra framkvæmda verður Flugvallarvegi lokað frá kl.10.00 þriðjudaginn 6. apríl til föstudagsins 16. apríl við gatnamót Nauthólsvegar að sunnan og við nyrðri lóðamörk Hertz bílaleigu að norðan.
 
Frá Bústaðavegi verður óskert aðgengi að Keiluhöllinni og Atlantsolíu. Opið verður fyrir staðbundna umferð að lóð Hertz bílaleigu og Flugbjörgunarsveitar Reykjavíkur.
Á framkvæmdartímanum verða settar upp vinnustaðamerkingar við Bústaðarveg, Flugvallarveg og Nauthólsveg eins og fram koma á meðfylgjandi teikningum.
 
Rétt er að taka fram að í neyðartilvikum er greiðfært fyrir útkallstæki um gamla Flugvallarveginn sunnanverðan frá Nauthólsvegi að Flugbjörgunarsveit Reykjavíkur og Hertz bílaleigu, en sú leið verður ekki opin almennri umferð.
 
Hér að neðan eru símanúmer, framkvæmdareftirlits og verktakans:
 
Framkvæmdareftirlit - Einar K. Stefánsson : 660-9970
Verktakar Magni ehf - Sölvi Jónsson : 660-6100
 
Með kveðju,
 
Ólafur Ólafsson
Deildarstjóri framkvæmda við umferðarmannvirki
Þetta netfang er varið fyrir ruslpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
Símar, 441-8103, 693-2525
 
Reykjavíkurborg - Framkvæmdar- og eignasvið
Skrifstofa mannvirkjagerðar
Borgartúni 12-14, 4. hæð vestur, 105 Reykjavík."
 
 
Kveðja,
Stjórnin.
 
 
Fjölskyldu páskaeggjaköfun - föstudaginn langa
þriðjudagur, 30 mars 2010

 

Fjölskyldu páskaeggjaköfun

 

Farið verður frá Höllinni okkar í Nauthólsvíkinni föstudaginn langa kl. 14:15, uppí Hallvíkina (Daviðsgjá).

 

Boðið verður uppá kaffi, kakó og kleinur á planinu fyrir fjölskylduna, á meðan pabbi/mamma kafa eftir páskaeggjum

 

Eigum skemmtilegan dag saman svona fyrir Páska.

 

Allir að mæta!

 

Kveðja,

 

Stjórnin.

 
Peysur merktar SKFÍ
fimmtudagur, 25 mars 2010

 

Nú geta félagar fengið peysur með merki SKFÍ og eru þær merktar að aftan og að framan.

 

Einnig er hægt að fá nafn/viðurnefni merkt á peysurnar. Peysurnar eru seldar á kostnaðarverði og kosta 4.995 kr.stk.

 

Fríða Hammer tekur niður pantanir og svo er hægt að skrá sig á spjallinu.

 

 

Kveðja,

Stjórnin.

 

hoodie_zip

 

 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Úrslit 13 - 18 af 140
Dive.is

Tengd núna

Við höfum 9 gesti tengda
Sportkafarafélag Íslands  -  Brautarenda  -  Flugvallarvegi  -  Sími 551 1211  -  Þetta netfang er varið fyrir ruslpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

 

Vefsíðugerð: Vefsíður.is
Joomla Templates by JoomlaShack Joomla Templates