|
laugardagur, 27 febrúar 2010 |
|
Háskólaneminn hún Jónína er að gera könnun um sportköfun á Íslandi sem er lokaverkefni hennar í Haskóla Íslands.
Hún hefur beðið stjórnina um að birta slóðina hérna á kofun.is og á fésinu.
Við hvetjum alla til að taka þátt í könnunini.
Ef þú ert ekki með facebook aðgang smelliru á "skip this step"
Kveðja, Stjórnin.
|
|
|
miðvikudagur, 24 febrúar 2010 |
Minnum á pressukvöldið á morgun fimmtudag þar
sem nýbakaði formaðurinn okkar ætlar að baka vöfflur! Fylla á 'ann og
vöfflu takk...
|
|
|
þriðjudagur, 23 febrúar 2010 |
|
Ný stjórn hefur tekið við störfum fyrir þetta ár og í fyrsta skipti í tæplega 28 ára sögu félagsins tekur kona við stjórnartaumunum!
Stjórnina skipa:
Formaður: Fríða Hammer
Meðstj.
- Óli Gísla
- Haukur
- Ingibjörg
- Logi
Varamenn:
Kveðja,
Stjórn S.K.F.Í.
|
|
|
miðvikudagur, 17 febrúar 2010 |
|
klukkan 20 á laugardaginn eftir aðalfund verður að venju og vanda vígsla stjórnar (lesist busun) og hefst í SKFÍ höllinni kl 20 stundvíslega.
Nýr formaður mun reyna við Nauthólsvíkursundið svokallaða, þ.e. synda nakin/n 25 sundtök útí myrkrið í Nauthólsvík án áttavita né köfunarljóss og reyna að komast heill á húfi til baka, gangi þetta ekki verður varaformaðurinn sendur að leita að formanninum.
Veigar á vægu verði og æskilegar almennar óspektir og læti við hæfi.
ATHUGIÐ AÐ EKKI ER LENGUR HÆGT AÐ GREIÐA MEÐ KORTUM.
:) :) :) :) :)
kv
Stjórn skfí
|
|
|
mánudagur, 11 janúar 2010 |
|
Aðalfundur Sportkafarafélags Ísland
Aðalfundur Sportkafarafélags Íslands verður haldinn laugardaginn 20. febrúar 2010, klukkan 13:00, í húsnæði félagsins við Brautarenda.
Rétt til setu og kjörgengis á aðalfundi hafa, mættir fullgildir skuldlausir félagar sem greitt hafa félagsgjöld þess árs sem aðalfundur fer fram á, heiðursfélagar og styrktarfélagar samkv. 5 gr. Kosningarétt hafa einungis mættir skuldlausir félagar.
Dagskrá:
1. Fundur settur og kosinn fundarstjóri og fundarritari.
2. Inntaka nýrra félaga
3. Lesin fundargerð síðasta aðalfundar.
4. Stjórn, öryggisnefnd og aðrar nefndir gefa skýrslu um starfsemi liðins árs.
5. Stjórn leggur fram endurskoðaða reikninga síðasta árs.
6. Lagabreytingar samkvæmt 11. grein laga félagsins.
7. Kosning stjórnar, varamanna, endurskoðenda og öryggisnefndar
8. Kosning annarra nefnda
9. Tillögur um inntökugjald og ársgjald í félagssjóð.
10. Önnur mál.
Tillögur um lagabreytingar þurfa að hafa borist stjórn skriflega, a.m.k 7 dögum fyrir aðalfund og verða þær kynntar á heimasíðu félagsins www.kofun.is eigi síðar en 5 dögum fyrir aðalfund. Tillögur að lagabreytingum sem berast eftir 13. febrúar verða ekki teknar fyrir á fundinum. Minnt er á að allar tillögur sem bornar eru fram á fundinum eiga að vera skriflegar og því gott að undirbúa sig vel.
|
|
|
mánudagur, 01 febrúar 2010 |
|
ATHUGIÐ AÐ NÚ VERÐA EKKI SENDIR ÚT GREIÐSLUSEÐLAR FYRIR FÉLAGSGJÖLDUM HELDUR VERÐA FÉLAGSMENN AÐ GREIÐA ÁRGJALDIÐ INN Á REIKNING FÉLAGSINS NR. 537-26-500963, KT. 520983-0239. Félagsgjöldin eru sem hér segir: Einstaklingsgjald kr. 9.500.- Hjónagjald kr. 12.000.- Utanbæjargjald kr. 4.000.- Þetta er gert til þess að spara félagsmönnum greiðsluseðlagjald í bankanum og spara félaginu kostnað vegna niðurfellingar greiðsluseðla sem ekki greiðast. Miðað er við að félagsgjöld séu greidd fyrir aðalfundinn þann 20. febrúar. n.k. Einungis þeir sem greiða félagsgjöldin teljast félagar í Sportkafarafélagi Íslands. Verið er að senda út fundarboð. Athugið að fundarboð eru send á lögheimilisfang. Kveðja, stjórnin.
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
| Úrslit 25 - 30 af 140 |