|
mánudagur, 28 september 2009 |
|
Nú er það svo að þátttaka er ekki nægileg
til þess að halda úti árshátið á Litlubrekku/Lækjarbrekku. Það hefur
því verið ákveðið að breyta forminu á þessu þar sem vonast er til að
þátttaka aukist við það. Við ætlum því að halda árshátíðina í
félagsheimilinu og hafa þetta á ódýrara formi eða einungis 3.000 kall á
manninn en 4.300 fyrir aðra en félagsmenn. Jafnframt munum við færa hana
til 10. október. Vegna þessara breytinga ákváðum við að núllstilla skráninguna og biðjum við fólk vinsamlega að skrá sig aftur ef það sér fram á að mæta á þennan einstaka viðburð :)
Þetta er gert til þess að koma á móts við félaga þar sem sökum aðstæðna í þjóðfélaginu þótti kostnaður of mikill. Gleðin hefst í félagsheimili Sportkafarafélags Íslands kl. 18:00 með fordrykk. Hægt að taka með sér drykkjarföng. Fordrykkur innifalinn í verði.
|
|
|
föstudagur, 25 september 2009 |
|
Vegna slæmrar veðurspáar á morgun verður bátaköfuninni á morgun frestað þangað til einhvern tíma í október. Við hvetjum þá sem vilja komast í kaf, að ræða málin á spjallinu og finna stað og stund og gera sér glaðan dag á morgun. Kveðja, Stjórn S.K.F.Í.
|
|
|
laugardagur, 29 ágúst 2009 |
|
Búið er að skella inn myndum frá köfunar- og grillferð nokkura kafara í S.K.F.Í. Skoðið myndirnar með því að smella á myndina hér fyrir neðan:
|
|
|
föstudagur, 28 ágúst 2009 |
|
Sælir félagar Nú ætlum við að fara snögga ferð í staðinn fyrir Skjálfanda, Kleifarvatnið ógurlega og tökum grillið með svo við getum bæði soðið fisk í hverunum og grillað steik á grillinu. Mæting kl 9 í skfí og lagt af stað kl 10 Taka með sér mat og öl, skfí verður með stóra grillið og við finnum okkur fallegan stað við vatnið, tökum köfun og svo matartími og jafnvel útilaugin ef við finnum hana (hún er þarna rétt hjá). Ef þig vantar gas verður Einsi formaður við pressuna í dag milli 18 og 1845 en hringið í 821 2588 ef annað hentar. mbk stjórn skfí
|
|
|
ţriđjudagur, 25 ágúst 2009 |
|
Nú er búið að bæta við myndum úr „Helgagíg“ í Kleifarvatni. Myndirnar eru teknar af Helga sjálfum! Getur það orðið mikið betra? Endilega skoðið myndirnar með því að smella á myndina hérna fyrir ofan.
|
|
|
mánudagur, 24 ágúst 2009 |
Smá brot af ţví sem hćgt er ađ sjá á hverasvćđinu í Kleifarvatni. Alveg frábćr stađur!
Myndataka: Baldur (baldie)
Tónlist: Bubble Life - Squarepusher
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Nćsta > Endir >>
|
| Úrslit 37 - 42 af 140 |