topleft
topright
Leigja húsnæði

Innskráning

IMG_2432.JPG
Picture 022.jpg
IMG_2337.jpg
Athugasemdakerfi
fimmtudagur, 02 júlí 2009

gefa_alit
Nú höfum við bætt við athugasemdakerfi hér á kofun.is. Allir innskráðir notendur geta nú skrifað stuttar athugasemdir við fréttir hér á forsíðunni og birtast þær nýjustu efst á síðunni þannig að auðvelt er að sjá þegar nýju áliti hefur verið bætt við.

Til að bæta við áliti er einfaldlega smellt á hlekkinn sem birtist undir öllum fréttum. Við vonum að þetta gefi notendum enn ánægjulegri upplifun við notkun á þessum frábæra vef.

 
Endurbætur á myndaalbúminu
miðvikudagur, 01 júlí 2009

 

Kafari í skammdeginu
Kafari á Þingvöllum í skammdeginu 2004

 

Jæja þá hefur vinnu verið lokið við endurbætur á myndaalbúminu okkar. Í fyrsta skipti er nú hægt að skoða allar myndirnar okkar síðan nýi vefurinn okkar opnaði snemma árs 2007. Við gerð nýja vefjarins sökk mikið af myndunum niður í dimm hafdjúp alnetsins en hafa nú komið upp á yfirborðið og hefur öllum myndum verið komið fyrir á sínum rétta stað á ný. Við viljum því hvetja alla til að rifja upp, eða forvitnast um, gamla tíma hér í Sportkafarafélagi Íslands, en við höfum safnað í albúmið okkar síðan árið 2003.

 

Í myndaalbúminu okkar er hægt að finna flottar myndir úr köfunarferðum og af félagslífinu hvort sem er fyrir ofan eða neðan sjávarmál.

Marglytta
Simbi
Köfunardagurinn 2008
Glæsileg marglytta á Akureyri 2007 Simbi fyrrum formaður að sprella á árshátíðinni 2006

Ánægður gutti á köfunardeginum 2008

 

Að lokum: Ef þið viljið koma ykkar myndum í myndaalbúmið okkar, getið þið sent vefstjóra myndirnar á netfangið vefstjori[hjá]kofun.is (Baldur) og sér hann til þess að myndirnar komist á góðan stað í albúminu. Til að auðvelda sendinguna er best að minnka myndirnar niður í upplausnina 640x480 (eða eitthvað nálægt því). Einnig getur hann tekið við myndum á pressukvöldum á disk eða fært þær á milli tölva (usb-lykill nauðsynlegur), hægt að hafa samband við hann í síma 692-3556.

 
Vestmannaeyjar 19.-21 júní
miðvikudagur, 13 maí 2009

 

Hin árlega Vestmannaeyjaferð verður helgina 19.-21.júní.
Gist verður á Gistiheimilinu Hvíld og greiða þarf staðfestingargjald í ferðina kr. 7.000.-  fyrir 2. júní
Þeir sem greiða ekki staðfestingargjald fyir þann tíma eiga ekki vísa gistingu í uppábúnu rúmi og gætu þurft að sofa í lundaholu.
 
Ekki er komið verð á ferðina en menn geta reiknað með kostnaði á bilinu 15-18.000
og er þá gisting, Herjólfur (flutningur á fólki og búnaði) og bátakafanir inni í því verði.
 
Allir að mæta í þessa frábæru ferð !!!
 
kv stjórnin
 
Bátaköfun !!
miðvikudagur, 06 maí 2009

Bátaköfun í Ásgrími laugardaginn 16 maí, kl. 10:00. Við hittumst í húsi
sportkafarafélagsins kl. 09:30 og leggjum saman af stað í Ásgrím. Farið verður í Syðra Hraun sem þykir einn besti staðurinn til að koma auga á
hnýsur og hugsanlega aðrar hvalategundir, einnig er þar mikið líf í
sjónum. Hugmyndin að sjóhópur björgunarsveitarinnar Ársæls verði með smá
æfingu með okkur í leitarköfun. Hlökkum til að sjá sem flesta

Mæting skfí 9:30

AOW eða hærra

Dýpi 16-30m ca 

2 kafanir

Tekur uþb 5klst

Taka með nesti

Bauja, hjól og áttaviti !

Ekki gleyma sjóveikipillum ;) 

Stjórnin

 
El Grillo
miðvikudagur, 22 apríl 2009

Sælir félagar

 

Nú er rúm vika til stefnu áður en við höldum austur, það eru 10 manns skráðir.

Gistingin er klár, fáum fínt pláss í kaffiaðstöðu í frystihúsi örlítið  utar í firðinum, ókeypis takk fyrir en þurfum að koma með svefnpoka og dýnur,  þar er ísskápur, kaffikanna og örbylgjuofn.

Loftið fáum við að venju hjá slökkvistöðinni, Nonni telur það vera auðsótt og kosti lítið.

Báturinn verður líkast til bátur björgunarsveitarinnar sem mun kosta okkur olíu, max 10.000kr á hópinn.

Þá er bara ferðalagið eftir, við ræðum þetta betur á pressukvöldi annað kvöld :)

 

koma svo...taka á þessu ;)

 

mbk

Fararstjórar

 

 
Köfunardeginum er frestað
laugardagur, 11 apríl 2009

 

Vegna lítils áhuga félagsmanna, tímaleysis og missir á styrktaraðilum verður Köfunardegi Sportkafarafélags Íslands frestað þangað til í byrjun Október.

Við stefnum á laugardaginn 3 okt en við þurfum að finna nýja styrktaraðila og vinna ötullega að undirbúningi.

Þangað til verðum við að hafa gaman saman og vera duglega að mæta á pressukvöld og í félagsferðir.

 

Kv

Stjórnin

 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Úrslit 49 - 54 af 140
Dive.is

Tengd núna

Við höfum 11 gesti tengda
Sportkafarafélag Íslands  -  Brautarenda  -  Flugvallarvegi  -  Sími 551 1211  -  Þetta netfang er varið fyrir ruslpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

 

Vefsíðugerð: Vefsíður.is
Joomla Templates by JoomlaShack Joomla Templates