|
Á síðasta ári voru haldnir 14 stórviðburðir á vegum félagsins en aðeins einn á vegum Seðlabanka Íslands sem þó hefur úr talsvert meiri peningum að moða en skfí, geri aðrir betur !
Árið var byrjað með stæl, haldið til útlanda, nánar tiltekið Færeyja með Frú Hammer diveguide, gistum í húsi slökkviliðsins og köfuðum með froskamannafélagi Færeyja, frábær ferð sem þarf að skoðast aftur, fallegt land, vinalegir frændur og fínar kafanir.
Sumardaginn fyrsta var kynning á félaginu í samvinnu við Reykjavíkurborg, fengum við rausnarlegar gjafir frá kók og Góu, einhver afgangur var nú af þessu góðgæti og úðuðu félagsmenn í sig hrauni og fanta næstu mánuði og fitnaði formaðurinn rosalega.
Köfunardagurinn var í fyrsta skipti í Laugardalslaug og tókst hann vel eftir samvinnu fjölmargra góðra félagsmanna og voru flestir á þeirri skoðun að aðstaðan í Laugardalslaug sé mun betri en í Sundhöll Reykjavíkur enda sú fyrrnefnda um 300 árum yngri og mun færri kúkar á botninum þar.
El Grillo var grillaður fyrstu helgina í Maí, vel skipulögð og stórskemmtileg ferð, sumir tóku allt köfunardótið sitt með og sendu á vörubílum á meðan aðrir sendu það í pósti nema hvað eitthvað var pósturinn Páll harkalegur svo kútaeign félagsmanna fór í köku. Eftir samningaviðræður við tryggingarnar uppfærðum við gamla og ryðgaða kúta í 500bar titaniumkúta í boði TM.
Árshátíðin var á Lækjarbrekku 17.maí þar sem snætt var léttpiprað naut í ljúfri sósu, enn fitnaði formaðurinn en svo kom Simbi Ísafjarðar og lék lík í einræðu við símafyrirtækið sitt, eftir það lét undirritaður spil svífa um allan salinn og annállinn hitti vel í mark og þökkum við góðu framlagi Hunters ferðamálafrömuðar.
Neptuna Expedition hélt kynningu á Megalodon rebreathers niðrí félagi, mjög skemmtilegt og fræðandi kvöld í boði rússnesku mafíunnar.
Prufað var til reynslu á hátið hafsins að vera með hvatakerfi sem gæfi svo afslátt af ferðum félagsins og gafst það vel, vel mætti til vinnu og heppnaðist hátíðin afa vel, einhver afgangur var af skel sem var selt Úlfari á Þremur Frökkum svo formaðurinn þyrfti ekki að fitna frekar.
Óvissuferðin sem er orðin árlegur viðburður var 28.júní og að venju var massafjör, rafting í Hvítá, sjóræningjaleikur og svo stokkið frammaf björgum við lófatak viðstaddra sem höfðu vit á að reyna ekki svona fíflaskap og fara frekar á 58m dýpi við Strýtuna !
Þann 3ja júlí kom skipið Peaceboat, þó ekki Greenpeaceboat, fullt af japönskum sælkerum og var félagið fengið til að matreiða okkar heimsfrægu öðuskel, fín kynning á félaginu og ágætis fjáröflun, von er á 3000 japönskum köfurum á næstunni sem munu ryksuga Gullkistuvík !
Reykjanesferðin var helgin 11.-13. júlí, tveir bátar og fullt af glöðum köfurum, Gunni strætó tók á móti okkur með sínu sólheimabrosi og eldaði óhreinsaða öðuskel mannskapnum til blandinnar ógleði.
Veðurguðirnir voru okkar megin og svo fjölmennt að spíttbátarnir urðu að kafbátum, Kolbrún var fundin á ný, hafði færst frá fyrra ári, tekin straumköfun, leitað að ankeri og fundnir nýir staðir.
Á laugardeginum héldu kafarar glaðir í sundlaugina grænu með bjór í hönd, þegar laug var lokað var haldið á barinn og trallað áfram, þá var tekinn rúntur í fjarstýrðum heitapottum sem telst ómissandi búnaður í alvöru ferðir héðan í frá.
Silfru var lokað í nokkra daga vegna jarðskjálfta og var talað um breytingar í gjánni vegna þessa en má teljast til lukku að enginn hafi verið í Silfru þegar þetta gerðist en nokkrir kafarar voru að gera sig klára þegar skjálftinn reið yfir.
Vestmannaeyjaferðin var 25.-27. júlí. Voru veðurguðirnir eitthvað timbraðir eftir Reykjanesferðina svo þetta var bara bræla en gaman samt, lítið kafað og sumir gáfu fiskunum morgunmatinn sinn. Við fengum lánað húsnæði fyrir búnaðinn og kafarar gistu á litlu gistiheimili nema Einsi þá verðandi formaður og Gunni flak þáverandi formaður sem sváfu í húsbíl Gunna.
Smári fyrrverandi formaður endaði í partýi í húsbílnum með þeim verðandi verandi fyrrverandi formönnum svo þar hafa stálin stinn mæst og hægt að nálgast þann þríleik á kofun.is/whosyourformanpunk?
Menningarnótt var sala á skel og skötusel þartil lögreglan kom og truflaði okkur, fannst skötuselurinn eitthvað keimlíkur strokufanganum Annþóri en Smári fyrrverandi formaður er góðkunningi lögreglunnar og leiðrétti þennan misskilning svo salan gæti haldið áfram.
Þá kom stjórn Seðlabankans sterk inn og bauð uppá frekar misheppnaðan viðburð eða svokallaða "kreppu" sem lagðist yfir land og sjó svo ferðum skfí á snæfellsnes ogfjársjóðsleit var aflýst svo fjársjóðskistan er enn á botni Kleifarvatns.
6. Nóv var flóamarkaður sem heppnaðist vel og komu menn með ýmsar gersemar og seldur eða skiptu fyrir annað drasl.. græjur þeas.
þá var "divers night", heimsmetsköfunin færð í Silfru og tóku fjölmargir kafarar þátt í því, gjáin lýstist upp sem að degi til og allir enduðu í veislumat í sumarbústað og heimsmet var slegið.
Enn ein frábær ferðin.
Laugardaginn 20. desember var jólaballið í Silfru sem var gaman með um 20 köfurum og var umtalað að jólasveinninn hefði farið á GUE námskeið því mikill munur var á sundstíl frá fyrri árum. Um kvöldið var að vanda skötu og hangikjötsveisla þar sem menn kepptust á að troða í sig skemmdum mat, enn fitnaði þáverandi formaðurinn.
Það má segja að árið 2008 hafi komið vel út miðað við ástandið í samfélaginu, við erum hvort eð er alltaf djúpt sokkin svo þetta hefur kannski ekki breytt miklu fyrir okkur en vonandi hlaupa nú ekki einhverjir til og selja dótið sitt úr landi.
|