|
mánudagur, 14 júní 2010 |
|
VERÐ 166 000 ikr með flugi frá íslandi
A. Blandað liveabourd og hótelgysting í
Sharm El Shaik.
Pakkaferð frá Danmörku er 13100 íkr, tilboðið
miðast við 10 kafara. Flogið er í gegnum Kaupmannahöfn. Ég er ekki komin með
tíman á fluginu til Egyptalands. Flug til og frá Íslandi með Icelandair er 35000
Íkr. Heildarpakki með flugi frá Íslandi er þá 166000 þús. Innifalið er 3 dagar
á liveaboard, fullt fæði á bátnum og 4 kafanir á dag. Í landi er innifalið 4 nætur á hóteli með
morgunmat og 2 local kafanir með bát frá Sharm El Shaik. Hægt er að vera 1 auka viku í Egyptalandi
kostar ca 43000 íkr. Sjá slóð fyrir ferðina og fyrir hóteli. Ekki er innifalið ca.9000 ikr aukakostnaður m.a tryggingar. Myndir af bátnum eru á síðunni okkar undir myndir 2010. Ég er hrædd um að ekki verði hægt að tryggja þennan bát nema með því að staðfesta fyrir 1 ágúst. Endilega þeir sem eru ákveðnir í að fara bætið ykkur á skráningarlistan.Geri ráð fyrr að þeir sem ætli að skoða pýramíddana fari saman í þá ferð ætti að sparast miklir peningar á því.
http://www.atlantisrejser.dk/Catalog.php?l=3&i=342
http://www.atlantisrejser.dk/Catalog.php?l=3&i=444
|
|
|
þriðjudagur, 08 júní 2010 |
Félagsmenn takið 3. júli frá ;)
Auka aðalfundur – Grill/bjórkvöld
Laugardagskvöldið 3.
júli kl. 18:00 verður auka aðalfundur, þar sem endurskoðaður ársreikningur 2009
verður lagður fram til samþykktar. Strax á eftir verður félagsfundur fyrir
almennar umræður. Stjórnin var hálf óundirbúin fyrir síðasta fund sem gleymdist
að auglýsa almennilega og biðjumst við velvirðingar á því. En mætingin var góð sem
við þökkum fyrir og þær skemmtilegu
umræður sem þar fóru fram J
Í kjölfarið verður kveikt upp í grillinu okkar og eru félagsmenn hvattir til að koma með
eitthvað ljúffengt á grillið svo við getum borðað saman. Einnig verða veigar seldar
á vægu verði gegn staðgreiðslu (engin posi á staðnum).
Mætum öll hress og kát ;)
Kv. Stjórnin
Party – Party
|
|
|
þriðjudagur, 01 júní 2010 |
|
Um næstu helgi verðu hin árlega Hátíð hafsins haldin, hvar annars staðar en niður við höfn
SKFÍ stefnir á að vera þar sjáanlegt og hefur borgin útvegað okkur aðstöðu, tjald og fl. þar sem við getum kynnt starfsemi félagsins.
Planið er að gera eins í gert var einu sinni að tína skeljar og grilla ofan í gesti og gangandi og því er hér með óskað eftir félagsmönnum til að taka þátt í skeljatínslu og kynningarstarfi um helgina.
Ef við leggjumst á eitt að tína skeljar og skipta með okkur helginni í kynningu er þetta ekkert mál, félaginu til framdráttar og hrein skemmtun.
Skeljatínsla verður á Óttastöðum föstudagsseinnipart og mæting kl. 18:00 við Straum eða 17:30 í félagsheimilinu. Það verður látið ráðst hvort kafa þurfi eftir skel á laugardaginn.
ATH! Allir sem taka þátt í Hátíð hafsins á vegum félagsins fá 5.000 kr. niðurgreiðslu á Vestmannaeyjaferðinni.
Látið endilega vita hvort þið getið tekið þátt svo við getum skipulagt þetta vel.
Kveðja,
Stjórnin
|
|
|
þriðjudagur, 25 maí 2010 |
|
Jónína Ólafsdóttir mun kynna
rannsóknarverefni sitt um köfun á Íslandi á fimmtudag kl 20:30.
Kynningin er er unnin upp úr mastersritgerð hennar. Við hvetjum alla sem
eiga heimangengt að mæta niður í félag og hlusta á niðurstöður hennar.
Kveðja,
Stjórnin
|
|
|
þriðjudagur, 11 maí 2010 |
|
Félagsferð til köfunar á El Grillo verður farin 21-24 maí næstkomandi. Þetta er eitthvað sem þú vilt ekki missa af! Skráning fer fram á kofun.is undir liðnum "Næstu viðburðir".
Almennur kostnaður miðað við 10 manns er 7.000 kr- og þeir sem ætla með í þessa ferð eru beðnir um að leggja inn á reikning félagsins 537-26-500983 kt:520983-0239 til staðfestingar fyrir mánudaginn 17 maí næstkomandi. Innifalið í þessum 7000,- eru afnot af Bjsv húsinu alla helgina, til að geyma og skola dótið okkar, og bátsferðirnarsem eru áætlaðar 5 stk, 2 á laugardag, 2 á sunnudag og 1 á mánudagsmorun.
Fengum 3 tilboð í gistingu og er verðið frá 9.600,- til 13.500,-.
- Ódýrast er á gistiheimilinu Hafaldan, í 4-6 manna herb. með aðgang að öllu 3.200,- per nótt, með rumfatnaði.Hægt að fá 2 manna herb. á 1000.- á mann í viðbót.
- Hótel Aldan er með 3.500,- í 2-3 manna herb. án morgunmatar og 4.500,- m/ morgunmat.
- Norðursild er með 5.500,- með uppábúið og handklæði í 2 manna herb. og 4.500,- án líns.
Félagið ætlar að splæsa í sameiginlegan mat á laugardagskvöldið 
AMEN verður köfunarstjóri í ferðinni og verður með kynningu fyrir þá sem ekki hafa farið í Grilló áður, miðvikudagskvöldið 19. maí
Kveðja,
Stjórnin.
|
|
|
föstudagur, 07 maí 2010 |
|
Minnum á Sundhallarköfun í kvöld föstudag, milli klukkan
18 og 21. Mæta með 1000 kall, góða skapið, hreinar græjur og hreinar
... til skiptanna.
Allir að merkja í dagatalið að það er alltaf
sund fyrsta föstudag í mánuði
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
| Úrslit 7 - 12 af 140 |